

Frábær þjónusta
Ása Bergmann hjá Bergmann Studio veitti frábæra þjónustu þegar kom að brúðkaupsveislunni okkar þann 14. ágúst 2021. Án hennar hæfileika hefðu hlutir eins og matseðlar, logo, nafnspjöld og skilti klárlega ekki komið eins vel út, en hún tók öllum okkar pælingum og tillögum með opnum hug. Ég vildi til dæmis festa nafnspjöld við matseðla með vax innsigli og hún kom með mjög góðar tillögur, ásamt því að prufa nokkrar gerðir af letri og uppsetningu. Við höfðum gyllt, bleikt og kremað litaþema í veislunni og hún hannaði allt prent í fullkomnu flæði við blómaskreytingar og stíl. Allt prent og grafík var fágað, fallegt og tónaði vel við andrúmsloftið. Við gætum ekki verið ánægðari með allt sem við fengum hjá Bergmann Studio.
- Gunnhildur Birna